Fall Wow air hf. Aðkoma Samgöngustofu og Isavia ohf.
Skýrsla (2103244)
Umhverfis- og samgöngunefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
20.04.2021 | 53. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Fall Wow air hf. Aðkoma Samgöngustofu og Isavia ohf. Á fund nefndarinnar mættu Skúli Eggert Þórðarson, Guðrún Jenný Jónsdóttir og Gestur Páll Reynisson frá Ríkisendurskoðun. Kynntu gestir skýrslu Ríkisendurskoðunar um fall WOW air hf. - Aðkoma Samgöngustofu og Isavia ohf. og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
15.04.2021 | 52. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Fall Wow air hf. Aðkoma Samgöngustofu og Isavia ohf. Bergþór Ólason lagði fram og nefndin samþykkti eftirfarandi bókun: Umhverfis- og samgöngunefnd harmar að skýrsla Ríkisendurskoðanda um fall WOW air hafi ratað til fjölmiðla áður en ríkisendurskoðandi átti þess kost að koma á fund nefndarinnar til að kynna skýrsluna. Nefndin áréttar að mikilvægt er að trúnaður sé virtur. Hlé var gert á fundi kl. 09:55-10:10. |
12.04.2021 | 47. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Fall Wow air hf. Aðkoma Samgöngustofu og Isavia ohf. Nefndin samþykkti að vísa skýrslu Ríkisendurskoðunar um fall WOW Air hf. - aðkoma Samgöngustofu og Isavia ohf. til umhverfis- og samgöngunefndar, sbr. 3. málsl. 1. mgr. 8. tölul. 1. mgr. 13. gr. þingskapa Alþingis. |